01.02.1973
Sameinað þing: 39. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1793 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (EystJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 1. febr. 1973.

Gunnar Gíslason, 2. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í nauðsynlegum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Eyjólfur Konráð Jónsson ritstjóri, taki sæti á Alþ, í fjarveru minni“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Gils Guðmundsson,

forseti Nd.

Eyjólfur Konráð Jónsson hefur áður setið þingbekk á þessu kjörtímabili og þarf því eigi að athuga kjörbréf hans. Býð ég hann velkominn til starfa.