12.02.1973
Sameinað þing: 42. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1865 í B-deild Alþingistíðinda. (1479)

Varamenn taka þingsæti

Forseti (EystJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 8. febrúar 1973.

Magnús Kjartansson, 3. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinherum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 2. varamaður Alþb. í Reykjavík, Sigurður Magnússon rafvélavirki, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Gils Guðmundsson,

forseti Nd.

Sigurður Magnússon hefur áður setið þing á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til þingstarfa.

Þá er annað bréf svofellt:

„Reykjavík, 9. febr. 1973.

Ásgeir Bjarnason, 1. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna setu á Búnaðarþingi mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vesturl., Alexander Stefánsson oddviti, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Björn Jónsson,

forseti Ed.

Alexander Stefánsson hefur áður setið þingbekk á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til starfa.

Eina dagskrármálið var tekið út af dagskrá.