22.02.1973
Sameinað þing: 48. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2048 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)
Umræður utan dagskrár
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Mér fannst fsp. hv. 8. landsk. þm. til hv. 3. landsk. þm. mjög tímabær, og ég get ekki alveg fallizt á skýringu hv. 3. landsk. þm., Bjarna Guðnasonar, hér á undan, að hann beri ekki ábyrgð á gengisbreytingunni í des., vegna þess að um leið og hann að vísu lýsti efasemdum sínum um gagnsemi hennar, þá lýsti hann í sömu andránni yfir, að hann mundi auðvitað verja falli ríkisstj., sem bar ábyrgð á þessari gengisbreytingu, sem hann útmálaði alveg réttilega, að hefði ekki náð neinum tilgangi.
Ég kvaddi mér hljóðs öðru sinni aðeins til þess að leiðrétta hæstv. viðskrh. að því leyti, að Sjálfstfl. eða málsvarar hans hafa aldrei neitað því að ræða till. um lausn efnahagsvandans. En þeir hafa neitað því að tengja saman ráðstafanir vegna eldgossins í Heimaey almennum till. um lausn efnahagsvanda, sem í sér aðrar rætur heldur en af eldgosinu stafa. Þetta er meginmunur. Ég vil leggja áherzlu á að það voru allsendis ósæmileg vinnubrögð af hálfu núv. ríkisstj. að ætla sér að leysa heimatilbúinn eigin vanda vegna þeirra náttúruhamfara og skelfinga, sem Vestmanneyingar hafa þurft að þola.