27.02.1973
Sameinað þing: 50. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2135 í B-deild Alþingistíðinda. (1669)

119. mál, sjónvarp

Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson) :

Herra forseti. Þessi fsp. er þannig:

„Hve margir sveitabæir í Austurlandskjördæmi geta ekki náð enn útsendingu sjónvarps? Hefur verið gerð áætlun um kostnað við að koma þessum bæjum í sjónvarpssamband? Er unnið áfram að framkvæmdum í þessu sambandi. Sé svo, hvenær má vænta þess, að þeim verði lokið?“

Þetta þarfnast ekki skýringar.