27.02.1973
Sameinað þing: 50. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2139 í B-deild Alþingistíðinda. (1675)
288. mál, rekstur annarrar lyfjabúðar í Hafnarfirði
Fyrirspyrjandi (Stefán Gunnlaugsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svar hans, þó að mér hafi ekki orðið að þeirri von minni að fá frá honum skýlausar yfirlýsingar um, að hin nýja lyfjabúð komi á næstunni. Mér er ekki kunnugt um, að það standi á nokkurn hátt á bæjaryfirvöldum Hafnarfjarðar hvað snertir að leggja fram nauðsynleg gögn til viðkomandi aðila viðvíkjandi þessu máli. Ég held, að bæjarstjórinn í Hafnarfirði hafi fyrir nokkru skrifað rn. og svarað þeirri beiðni, sem frá því kom um upplýsingar um viss atriði, þannig að það á ekki að standa á afgreiðslu málsins þess vegna.
Ég vil að lokum ítreka, sem ég sagði hér áðan, að ég vil eindregið fara þess á leit við hæstv. ráðh., að hann geri það, sem í hans valdi stendur, til þess að úr rætist í þessu máli fyrir Hafnfirðinga hið allra fyrsta.