27.02.1973
Sameinað þing: 50. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2160 í B-deild Alþingistíðinda. (1705)
292. mál, hafnargerð í Dyrhólaey
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins upplýsa það, að mér var kunnugt um þau gögn, sem hv. fyrirspyrjandi gat hér um. Gott væri, ef rétt reyndist, að hægt væri að byggja höfn við Dyrhólaey fyrir minna fé en vita- og hafnamálastjórnin kemst að niðurstöðu um eftir allmiklar vísindalegar rannsóknir á aðstöðu þarna. En oftast nær hefur viljað fara svo, að þegar til framkvæmda hefur komið, hafa verkin farið fram úr þeim áætlunum, sem sérfræðingar ríkisvaldsins hafa gert, og frekar óttast ég það, að kostnaður við slíka hafnargerð, sem þarna er um rætt, mundi fara nær 3. milljarðinum heldur en 2. Ég er afskaplega hræddur um það. En það er ekki á mínu valdi að taka af skarið, sem ég vildi gjarnan gera, því að nú blasa þessi mál sérstaklega við í nýju ljósi, og það er full ástæða til að kanna af fyllstu alvöru alla hafnarmöguleika suðurstrandarinnar, eins og nú standa sakir. En það er áreiðanlegt, að þegar um er að ræða 2–3 milljarða mannvirki, verður að koma til kasta Alþ., — fjárveitingavaldsins, Alþ, í heild, — til þess að ákveða, hvað gera skuli í slíkum efnum. Það gera ráðh, ekki upp á sitt eindæmi, hvorki ég né aðrir. En hér er skýrslan.