05.03.1973
Efri deild: 65. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2257 í B-deild Alþingistíðinda. (1768)

180. mál, stofnun og slit hjúskapar

Frsm. (Björn Fr. Björnsson); Herra forseti. Allshn. hefur verið beðin um það af hálfu dómsmrh. að flytja þetta frv. Í grg. segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Er frv. núgildandi laga um stofnun og slit hjúskapar var lagt fram á Alþ. vorið 1971, varð meðferð þess ekki lokið, og var frv. þá lagt fram að nýju á næsta Alþ. Við framlagninguna láðist að leiðrétta eitt ártal í l., og er þeirri leiðréttingu komið hér á framfæri“.

Um annað fjallar ekki efni þessa frv.