05.03.1973
Neðri deild: 60. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2261 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (GilsG) :

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf :

„Reykjavík, 1. marz 1973.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Bragi Sigurjónsson bankaútibússtjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Benedikt Gröndal,

8. landsk. þm.

Bragi Sigurjónsson hefur áður tekið sæti hér á Alþ. á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til starfa.