16.10.1972
Efri deild: 3. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (18)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (BJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá Þorvaldi Garðari Kristjánssyni, hv. 5. þm. Vestf.:

„Reykjavík, 12. okt. 1972.

Með því að ég er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis að óska þess, að varamaður minn, Ásberg Sigurðsson borgarfógeti, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.

Virðingarfyllst,

Þorv. Garðar Kristjánsson.“

Ásberg Sigurðsson hefur áður átt sæti á Alþ. á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið rannsakað og þarf því ekki að koma til athugunar eða afgreiðslu og býð ég hann velkominn til þingstarfa.