12.03.1973
Neðri deild: 63. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2473 í B-deild Alþingistíðinda. (1863)

Umræður utan dagskrár

Forseti (GunnG) :

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf.

„Reykjavík, 9. marz 1973.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykv., Tómas Karlsson ritstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Þórarinn Þórarinsson.“

Karl G. Sigurbergsson og Tómas Karlsson hafa báðir tekið sæti á þingbekk á þessu kjörtímabili, og býð ég þá velkomna til starfa.