13.03.1973
Sameinað þing: 57. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2494 í B-deild Alþingistíðinda. (1895)

293. mál, Tækniháskóli Íslands

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að þakka hæstv. ráðh. fyrir svarið. Ég leyfi mér að skilja það svo, að þegar að því kemur að velja tækniháskólanum eða tækniskólanum stað, muni hann taka til athugunar að skipa norðlenzka menn til viðbótar í n., ekki eingöngu menn, sem eru ættaðir af Norðurlandi, heldur menn, sem þar eiga heima.