14.03.1973
Efri deild: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2535 í B-deild Alþingistíðinda. (1936)
190. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. (Bjarni Guðbjörnsson):
Herra forseti. Eins og kunnugt er, kom fram við 1. umr. þessa máls, eftir að sjútvn. hafði gengið frá frv., ósk um að útflutningsgjaldi af fob-verði saltsíldar yrði breytt úr 6% í 4%, og þess farið á leit við n., að hún athugaði þetta á milli umr. Þetta hefur verið gert, og niðurstaðan hefur orðið sú, að samkomulag hefur orðið um að flytja brtt. við frv., þannig að ákvæði til bráðabirgða breytist. Breytingar, sem þessi till. gerir ráð fyrir, eru í fyrsta lagi, að heimilt verði að fella niður útflutningsgjald af saltaðri síld, en ekki að færa það á milli töluliða í 2. gr. frv., en það gildir bara til ársloka 1973. Önnur breyting felst einnig í þessari brtt. okkar við þetta frv. og er varðandi þurrkaðan saltfisk. Þar er gert ráð fyrir, að komi inn heimild í ákvæðum til bráðabirgða fyrir sjútvrh. til að endurgreiða útflutningsgjald af þurrkuðum saltfiski framleiddum á árinu 1973. Sú ósk um endurgreiðslu stafar af því, að erfiðleikar munu vera á að láta enda ná saman varðandi þurrkaða saltfiskinn, en komið hefur fram, að það muni verða bætt á annan hátt fyrir framleiðsluna 1972, en reiknað með að fella niður útflutningsgjaldið á þurrkuðum saltfiski á árinu 1913. Um þetta er fullt samkomulag milli aðila. Leyfi ég mér að lesa upp þessa brtt., þ. e. að ákvæði til bráðabirgða orðist svo:
„Heimilt er að endurgreiða útflutningsgjald samkv. lögum þessum af frystum karfaflökum, sem framleidd voru á tímabilinu 1. júní til 30. sept. 1972, svo og af frystri síld framleiddri á árinu 1972. Einnig er heimilt að endurgreiða útflutningsgjald af saltsíld framleiddri á árinu 1972 og 1973 og af þurrkuðum saltfiski framleiddum á árinu 1973.
Þá skal sjútvrh. heimilt að ráðstafa útflutningsgjaldi af saltaðri síld og flökum úr saltaðri síld, sem flutt er út á árinu 1972, til síldarútvegsnefndar, m. a. vegna kostnaðar við öflun markaða fyrir saltaða síld af fjarlægum miðum:
Þessi síðari mgr. er óbreytt frá fyrri ákvæðum til bráðabirgða.
Ég leyfi mér að leggja fram þessa brtt. skrifl. og mælist til þess, að hún verði tekin til afgreiðslu. Að öðru leyti var n. sammála um að leggja til, að frv. þetta yrði samþ.