22.03.1973
Neðri deild: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2732 í B-deild Alþingistíðinda. (2081)
Umræður utan dagskrár
Eysteinn Jónsson :
Herra forseti. Ég vil, herra forseti, taka undir það, að nefndir starfi betur en verið hefur, og ekki fara að greina það neitt í sundur. Ég bendi á, að sá háttur var upp tekinn á hv. Alþingi að hafa yfirleitt fundi 4 daga vikunnar, en ekki 5, jafnvel 6, eins og var áður fyrr, til þess að nefndir notuðu föstudaginn til þess að ryðja frá sér málum. Það eru mikil vonbrigði, að þessi háttur hefur ekki orðið til þess að greiða jafnmikið fyrir nefndarstörfum og menn vonuðust eftir. Ég vil taka mjög sterklega undir það, að nefndir drífi málin frá sér og láti þau fá einhverja afgreiðslu eftir sinni skoðun.