26.03.1973
Neðri deild: 70. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2791 í B-deild Alþingistíðinda. (2150)

148. mál, sala landspildu úr Bjarnanesi í Nesjahreppi

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Landbn. hefur athugað þetta frv., sem er um að heimila ríkisstj. að selja Nesjahreppi vegna þarfa á lóðum undir íbúðarhús spildu úr landi prestssetursins Bjarnaness. Meðmæli Landnáms ríkisins og jarðeignadeildar hafa fengizt, og presturinn í Bjarnanesi mælir með sölunni, sbr. grg. frv:

Landbn. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.