27.03.1973
Sameinað þing: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2802 í B-deild Alþingistíðinda. (2173)
203. mál, framlagning gagna við Alþjóðadómstóllinn
Utanrrh. (Einar Ágústsson) :
Herra forseti. Ég skal ekki frekar en aðrir hv. þm. hefja umr. um það, hvaða gögn hefði átt að senda til Alþjóðadómstólsins í Haag. Mönnum sýnist sitt hverjum um það, eins og kom fram hjá hv. 5. þm. Reykn. En ég vil aðeins í tilefni af því, sem hann sagði, minna menn á að lesa sératkvæði dómarans Luis Padilla Nervo frá Mexíkó, sem birt er með úrskurði Alþjóðadómstólsins. Ég hygg, að þegar menn lesa þetta sératkvæði, komist þeir að raun um, að sjónarmið Íslendinga hafa komizt til skila, því að aðrir dómarar en Padillo Nervo hafa vitanlega kynnt sér þau gögn, sem hann vitnar sérstaklega til.
Það má vel vera, að frá okkar hendi hefði átt að senda meira af gögnum, ég skal ekki leggja dóm á það, enda kannske ekki dómbær um það. En ég leyfi mér að halda því fram, að a. m. k. aðalatriðið í okkar málflutningi hafi komizt til skila. Við fluttum ekki málið, við sendum aðeins nokkur gögn, þau sem ég hef gert grein fyrir, og mér virðist af þessu sératkvæði og raunar líka af því, sem dómurinn sjálfur fjallar um, að sjónarmið okkar hafi komizt til skila.
Það hefur verið minnzt hér á annað mál, upplýsingar frá 1961. Ég mun taka það til athugunar í tilefni af fram kominni þáltill., hvað til sé til birtingar af slíkum skjölum í utanrrn. En þessi þáltill. kemur að líkindum fljótlega til meðferðar, og ég vil gjarnan sjá, hvaða álit Alþ. hefur á birtingu þessara skjala.
Ég mun gera ráðstafanir til þess, að utanrmn.- mönnum verði sent eintak af þeim skjölum, sem ég vitnaði áðan til, það er til þæginda. Ég hygg, að þeir hafi fengið meiri hlutann af þessum skjölum. En það getur verið hagkvæmt fyrir þá, eins og okkur alla, að fá þetta í einni bók. Ég mun gera ráðstafanir til þess í tilefni af fram kominni fsp. hv. 5. þm. Reykn.