27.03.1973
Sameinað þing: 63. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2822 í B-deild Alþingistíðinda. (2199)

100. mál, réttarstaða tjónaþola vegna skaða af völdum flugumferðar

Frsm. (Jón Skaftason) :

Herra forseti. Allshn. hefur haft till. til þál. um könnun á réttarstöðu tjónaþola vegna skaða af völdum flugumferðar í nágrenni flugvalla til athugunar undanfarna daga og sendi þáltill. þessa til umsagnar tveimur aðilum, almannavarnaráði og Sambandi ísl. sveitarfélaga. Báðir þessir aðilar mæla með samþykkt þáltill. óbreyttrar. N. telur, að þáltill. þessi sé merkilegt rannsóknarefni, og leggur því einróma til í nál. á þskj. 378, að hún verði samþykkt.