28.03.1973
Efri deild: 79. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2827 í B-deild Alþingistíðinda. (2205)

154. mál, ríkisreikningurinn 1970

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Á þskj. 288 er frv. til l. um staðfestingu á ríkisreikningi fyrir árið 1970. Frv. þetta var lagt fram í hv. Nd. og hefur hlotið afgreiðslu d. með samstöðu allra hv. þdm. Frv. um ríkisreikninginn fyrir árið 1970 var lagt fram á síðasta þingi, en kom ekki til afgreiðslu þá og er því endurflutt á þessu þingi. Ríkisreikningurinn var afhentur þm. í okt. 1971 fyrir 1. umr. fjárlaga fyrir árið 1972, en reikningurinn hafði þá verið afhentur yfirskoðunarmönnum ríkisreiknings til meðferðar. Þeir luku því starfi sínu 2. maí á s. l. vori, og var reikningurinn þá lagður fram til meðferðar Alþingis, eins og áður segir, en vegna þess hve þá var á þingið liðið, fór afgreiðsla hans ekki fram.

Með lögum nr. 52 frá 1966 voru gerðar allmiklar breytingar á framsetningu ríkisreiknings og fjárlaga, er fólu m. a. í sér, að reikningnum var ætlað að gefa yfirlit yfir mun fleiri þætti ríkisfjármála en áður og sýna reikninga allra ríkisstofnana, fyrirtækja og sjóða ríkisins, annarra en banka og lánastofnana. Hin nýja framsetning hófst með gerð ríkisreiknings fyrir árið 1968, og frá því hefur reikningurinn verið lagður fram á Alþ. fyrir 1. umr. fjárlaga næsta árs án athugasemda yfirskoðunarmanna, en þeir hafa lokið starfi sínu nokkru eftir áramót og reikningurinn þá lagður fyrir Alþ. til afgreiðslu. Nauðsynlegt er að gera ráðstafanir til þess að hraða meira allri þessari meðferð ríkisreiknings, og þarf ríkisbókhaldið að ljúka frágangi ríkisreiknings til Alþ. og yfirskoðunarmanna eigi síðar en í apríl eða maí eftir lok reikningsársins, þannig að yfirskoðunarmenn ríkisreikningsins, er kjörnir eru af Alþ., geti afgreitt athugasemdir sínar og úrskurður liggi fyrir að hausti, er Alþ. tekur til starfa og fjárlagafrv. er lagt fram, eða a. m. k. áður en fjárlög eru afgr. fyrir næsta ár. Reikningsuppgjör hefur stefnt í þessa átt, og vonazt er til, að unnt verði að leggja A-hluta reikningsins fyrir árið 1972 fram á hv. Alþ. nú í vor, áður en Alþ. lýkur, og B-hluta reikningsins í þingbyrjun í haust. Seinagangur á ársuppgjöri margra ríkisaðila, þeirra er tilheyra A- og B-hluta, hefur valdið þeim drætti, sem orðið hefur á framlagningu reikningsins af hálfu ríkisbókhaldsins. Hins vegar hefur að þessu leyti allt batnað verulega, eftir að ríkisbókhaldið tók upp þá þjónustu við ríkisstofnanir, er þess hafa óskað, að annast bókhald og ársuppgjör þeirra. En áður sinntu þær því sjálfar, margar hverjar við erfiðar aðstæður. Þessi þjónusta ríkisbókhaldsins hefur farið mjög vaxandi síðustu tvö árin og mælzt vel fyrir hjá þeim stofnunum, sem hennar hafa notið. Um 70 stofnanir hafa nú á síðustu rúmum tveimur árum gengið inn í þessa þjónustu ríkisbókhaldsins. Þess er að vænta að sama þróun verði í bókhaldi þeirra ríkisstofnana, sem eru svo stórar í sniðum, að eigin bókhaldsúrvinnsla hentar þeim betur. Í þessu sambandi má einnig geta þess, að undirbúningur að úrvinnslu bókhaldsins í skýrsluvélum hefur farið fram á vegum ríkisbókhaldsins og er ætlunin að hefja úrvinnslu alveg á næstunni eftir kerfi, sem hentar öllum ríkisstofnunum. Þessi atriði eiga öll að stuðla að skjótari frágang ríkisreiknings af hálfu ríkisbókhaldsins en verið hefur, þannig að reikningurinn verði á vori hverju lagður fyrir Alþ., þótt hann komi ekki til meðferðar þingsins fyrr en haustið eftir.

Við 1. umr. fjárlaga fyrir árið 1972, sem fram fór í okt. 1971, gerði ég grein fyrir helztu atriðum ríkisreikningsins fyrir árið 1970 og lagði jafnframt fram sérstaka grg. um sama efni til glöggvunar hv. þm. og helztu atriði um afkomu ríkissjóðs. Eigi er því ástæða til að fara um mörgum orðum um þann ríkisreikning, sem hér liggur fyrir til samþykktar. Tekjur reyndust 9 milljarðar og 800 millj. kr. og gjöld 9 milljarðar 352 millj. kr. og rekstrarafgangur 448 millj. kr.

Þá er rétt að víkja að aths. yfirskoðunarmanna við ríkisreikninginn fyrir árið 1970. Þær beindust að ýmsum þáttum í fjármálum ríkisstofnana og rn. Þeir fengu fullnægjandi svör eða gerðu till. um ákveðin atriði, er verði höfð til athugunar í framtíðinni. Með till. þeirra að ríkisreikningi birtist einnig yfirlit um nefndafjölda og nefndaþóknun einstakra rn. árið 1970, sem tekin er úr fjölrituðu hefti um það efni, teknu saman af Fjárlaga- og hagsýslustofnuninni. Yfirskoðunarmenn höfðu um nokkurt skeið óskað eftir slíkum upplýsingum, og slíkt fjölritað yfirlit fylgdi ríkisreikningi fyrir árið 1971, þegar hann var lagður fram hér á hv. Alþ. á síðasta hausti, og gert er ráð fyrir, að þeirri reglu verði fylgt framvegis.

Af þeim málum, sem yfirskoðunarmenn spurðust fyrir um í aths. sínum við ríkisreikninginn fyrir árið 1970, fjallaði eitt um kostnað við breytingar á húsnæði sjónvarpsins að Laugavegi 176 fyrir matar- og kaffistofu stofnunarinnar. Því máli vísuðu yfirskoðunarmenn til ákvörðunar Alþ. Skal því gerð nokkur grein fyrir því máli. Nánari atriði, aths. yfirskoðunarmanna og svör við þeim, er að finna í ríkisreikningnum fyrir árið 1970.

Eins og kunnugt er, var hluti húseignarinnar Laugavegur 176 keyptur fyrir skrifstofuhúsnæði og vinnudeildir sjónvarpsins. Hluti matar- og kaffistofu og lítill fundarsalur ásamt tilheyrandi gögnum, geymslum og snyrtiaðstöðu var talinn 330 fermetrar eða nálægt 1000 rúmmetrum allt húsnæðið. Kostnaðaráætlun arkitekts við lagfæringar á þessu húsnæði var 4 millj. 59 þús. Var það án þóknunar verkfræðings og arkitekts, sem ekki var tekin með við þessa kostnaðaráætlun. Kostnaðurinn við breytinguna var hins vegar tæpar 12 millj. kr. um mitt ár 1971 og er nú orðinn eitthvað yfir 12 millj., að því er bezt verður vitað. Orsakir þessa mikla kostnaðar umfram áætlun eru einkum taldar hækkun byggingarkostnaðar á því tímabili, sem endurbæturnar náðu yfir, meiri endurnýjunarþörf húsnæðis en áætlað var og hærri kostnaður vegna þess, að eigi hafði gefizt ráðrúm til nægilegrar undirbúningsvinnu, áður en til framkvæmda kom. Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings leggja til, að mat á því fari fram af óvilhöllum dómkvöddum mönnum, hvort vinna við þessar framkvæmdir hafi orðið óeðlilega dýr, og þar með yrðu tekin af öll tvímæli um réttmæti þeirra reikninga og framkvæmdakostnað allan, sem hér um ræðir. Sýnist eðlilegt, að Alþ. taki afstöðu til málsins á þessum grundvelli. Rétt er að vekja athygli á því, að eigi hafði verið leitað heimildar menntmrn. til þessarar sérstöku breytingar, enda taldi sjónvarpi þær endurbætur hluta af húsnæðismálinu heild.

Ég sé ekki ástæðu til þess við þessa umr. nema tilefni gefist til, að gera hér frekari grein fyrir ríkisreikningnum fyrir árið 1970. Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn., og leyfi mér að biðja hv. n. að vinn að framgangi málsins með nokkrum hraða, á því að það er svo seint fram komið sem raun ber vitni um.