28.03.1973
Efri deild: 79. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2831 í B-deild Alþingistíðinda. (2211)

180. mál, stofnun og slit hjúskapar

Frsm. (Björn Fr. Björnsson) :

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið til meðferðar í allshn. Það gerir ráð fyrir því, að nauðsynleg leiðrétting sé gerð á einni gr. laga um stofnun og slit hjúskapar, 85. gr., en þar er um að ræða ártalsskekkju, sem var ekki lagfærð á sínum tíma. Í frv. er lagt til, að ártalinu 1972 verði breytt í 1973. Önnur breyting er ekki gerð á lögunum, og n. mælir einróma með samþykkt frv.