29.03.1973
Efri deild: 80. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2859 í B-deild Alþingistíðinda. (2250)
125. mál, eiturefni og hættuleg efni
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Þetta frv. til l. um breyt. á l. um eiturefni og hættuleg efni frá 1968 er flutt vegna þess, að þegar lög um eiturefni og hættuleg efni voru afgreidd, fengu listar yfir eiturefni og hættuleg efni lagagildi, og yrði því að fara með breytingar og viðbætur á þeim sem um lagabreytingar væri að ræða. Hins vegar er slíkt mjög óhagkvæmt. Því er það meginefni þessara frv., að gert er ráð fyrir, að skráning eiturefna og hættulegra efna sé staðfest með reglugerð að fengnum till. eiturefnanefndar og landlæknis. Ég hygg, að flestir séu sammála um, að það er of þungt í vöfum að þurfa að flytja till. um breyt. á l. í hvert skipti, sem ný efni bætast inn á þessa lista, og það sé skynsamleg hagræðing að hafa þann hátt á, sem lagt er til í þessu frv.
Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.