30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2904 í B-deild Alþingistíðinda. (2292)

48. mál, fiskiðnskóli í Siglufirði

Frsm. (Lárus Jónsson) :

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. til þál. um fiskiðnskóla í Siglufirði á þskj. 50, sent hana til umsagnar Sambandi ísl. sveitarfélaga, Fjórðungssambandi Norðlendinga, Fiskifélagi Íslands og Fiskmati ríkisins. N. mælir með, að till. verði samþ., en brtt. á þskj. 415 hefur verið rædd í n., og getur n. fallizt á þá till. frá Geir Gunnarssyni.