30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2915 í B-deild Alþingistíðinda. (2304)

179. mál, sjónvarp á sveitabæi

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég vil aðeins út af aths. í ræðu hv. síðasta ræðumanns taka það fram til þess að fyrirbyggja misskilning, að ég er að sjálfsögðu eindregið fylgjandi þessari ágætu till., sem 10 ágætir dreifbýlisþm. Sjálfstfl. flytja hér.