31.10.1972
Sameinað þing: 10. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í B-deild Alþingistíðinda. (237)

42. mál, Síldarverksmiðjur ríkisins

Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin og hið jákvæða, sem greinilega er að gerast í þessum málum, og ætla að vona, að verksmiðja SR á Reyðarfirði standi ekki auð og tóm næsta vetur, á meðan verksmiðjur þar í nágrenninu mala fólkinu gull.