03.04.1973
Sameinað þing: 66. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3006 í B-deild Alþingistíðinda. (2378)

55. mál, Hafrannsóknastofnunin

Björn Pálsson:

Herra forseti. Út af því, sem hv. frsm. sagði hér, að það mundi kosta 4.5 millj. reksturinn á bátnum, vil ég leyfa mér að spyrja um það, hvort þar í eru vextir og afskriftir af bátnum. Ég álít, að þetta sé einkennilega lág upphæð, ef það er reiknað með.