31.10.1972
Sameinað þing: 10. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í B-deild Alþingistíðinda. (240)

272. mál, aukinn húsakostur sjúkrahúss á Akureyri

Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrh. fyrir upplýsingarnar og legg áherzlu á það, að öll undirbúningsvinna er að sjálfsögðu ágæt, en hún má ekki taka svo langan tíma, að biðtíminn eftir hinu væntanlega sjúkrahúsi verði allt of langur. Á það legg ég sérstaka áherzlu hér, og ég veit, að við gerum það öll, sem búum þar norður frá.