04.04.1973
Efri deild: 82. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3036 í B-deild Alþingistíðinda. (2414)

69. mál, Hæstiréttur Íslands

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Eftir þær umr., sem hér hafa farið fram um till. á þskj. 502, sýnist mér einsýnt, eins og fram hefur komið, að fresta málinu. Annað er ekki hægt. Það er þannig vaxið, að við getum ekki afgreitt málið nema hafa um það hreinar línur. Mér sýnist þessi till. um að fresta málinu hið eina rétta á þessu stigi og málið verði athugað nánar og haft samráð við hæstv. dómsmrh.