04.04.1973
Neðri deild: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3042 í B-deild Alþingistíðinda. (2442)

190. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Garðar Sigurðsson) :

Herra forseti. Hv. sjútvn. Ed. flutti á þskj. 351 frv. til l. um útflutningsgjald af sjávarafurðum. Í meðförum Ed. var gerð breyting á ákvæðum til bráðabirgða, og breytingarnar fólgnar í því, að þar eru víkkaðar heimildir til endurgreiðslu á útflutningsgjaldi, þannig að bætt er við saltsíld, sem framleidd er á árinu 1973, og einnig þurrkuðum saltfiski, sem framleiddur kann að verða á árinu 1973. Að öðru leyti er það óbreytt frá Ed.

Sjútvn. Nd. hefur athugað þetta mál á fundum sínum og leggur til að frv. verði samþ.