09.04.1973
Efri deild: 85. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3208 í B-deild Alþingistíðinda. (2662)

218. mál, breyting á mörkum Gullbringusýslu og Kjósarsýslu

Axel Jónsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins lýsa ánægju minni yfir þessu frv. og láta í ljós von um, að það fái sem skjótasta afgreiðslu og umfram allt á þessu þingi. Eins og hæstv. forsrh. tók fram, er við þetta frv. að finna einhverjar mótbárur, en ég vil fullyrða, að óskir um þessar breytingar og meðmæli með, að slík breyting eigi sér stað, eru margfalt þyngri á metunum en þær örfáu gagnathugasemdir, sem hér um ræðir. Herra forseti. Ég læt í ljós von um, að málið megi fá sem skjótasta afgreiðslu.