09.04.1973
Neðri deild: 82. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3220 í B-deild Alþingistíðinda. (2701)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Gils G):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf :

„Reykjavík, 7. apríl 1973.

Þar sem ég af heilsufarsástæðum mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjavík, Jón Snorri Þorleifsson húsasmiður, taki sæti á Alþ. í forföllum mínum.

Magnús Kjartansson, 3. þm. Reykv.

Jón Snorri Þorleifsson hefur áður tekið sæti á þingi á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til starfa.