09.04.1973
Neðri deild: 83. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3254 í B-deild Alþingistíðinda. (2735)

221. mál, aðstoð ríkisins við kaupstaði og kauptún vegna landakaupa

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Félmn. hefur athugað þetta frv. og er sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt. Frv. er um það, að ríkissjóður leggi árlega fram 10 millj. kr. á árunum 1974–1983 til þess að lána kaupstöðum og kauptúnum til kaupa á löndum og lóðum innan takmarka hlutaðeigandi sveitarfélaga. Þetta hafa áður verið 3 millj. á ári, en féll alveg niður á þessu ári.