16.10.1972
Neðri deild: 3. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (28)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (GilsG):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 12. okt. 1972.

Samkv. beiðni Péturs Sigurðssonar, 10. þm. Reykv., sem er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Birgir Kjaran hagfræðingur, taki sæti á Alþ. í fjarveru hans. Virðingarfyllst,

Þorv. Garðar Kristjánsson,

ritari þingflokks sjálfstæðismanna.

Til forseta Nd.

Birgir Kjaran hefur tekið sæti hér á Alþ. fyrr á þessu kjörtímabili og rannsókn á kjörbréfi hans farið fram, og býð ég hann velkominn til starfa.