11.04.1973
Efri deild: 89. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3321 í B-deild Alþingistíðinda. (2818)
21. mál, Jafnlaunaráð
Frsm. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Félmn. hefur fjallað um frv. til l. um jafnlaunaráð, en frv. er áður komið frá Nd. N. mælir eindregið með samþykkt frv., en einstakir nm. hafa áskilið sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt.
Frv. um jafnlaunadóm var flutt á síðasta þingi af hv. 4. landsk, þm., en hlaut þá ekki afgreiðslu. Frv. var svo endurflutt í breyttri mynd í haust sem frv. um jafnlaunaráð, og stóðu þá að því þm. úr öllum flokkum með 4. landsk. þm. í fararbroddi. Nd. gerði nokkrar breytingar á frv., og þannig liggur það nú fyrir breytt hér í deildinni.
Það munu ekki teljast þörf á því að fara mörgum orðum um frv. þetta, svo mjög sem um það hefur verið rætt innan þings og utan. Kveikjan að því liggur í þeirri staðreynd, að hvergi nærri er um fullan launajöfnuð að ræða milli karla og kvenna í okkar þjóðfélagi, þó að þar hafi margt áunnizt, að vísu að undangenginni áratuga baráttu. Frv. lýtur í grundvallaratriðum að því, hvernig tryggja megi launajafnrétti í reynd og koma í veg fyrir misrétti í þeim efnum. Misréttið kemur víða fram, ef vel er að gáð, og það hlýtur því að teljast brýn nauðsyn að freista þess að koma í veg fyrir, að vinnuveitandi, hvort sem það er einkaaðili eða opinber aðili, geti á einhvern hátt sniðgengið jöfnun í þessum efnum og mismunað starfsfólki sínu á einhvern hátt eftir kynferði einu saman, án tillits til menntunar og hæfileika. Frv. þetta, ef að lögum verður, er vissulega veruleg trygging fyrir því, og ég vil sérstaklega fagna því, að um það hefur náðst eins góð eining hér á Alþ. og raun ber vitni um.
Ef rétt er litið á einstakar greinar, fjalla 1. og 2. gr. frv. um þá skyldu að greiða jöfn laun fyrir sambærileg störf og um það, að óheimilt sé að mismuna fólki eftir kynferði við ráðningu eða launaákvörðun. 3. gr. er um skipan jafnlaunaráðs, hverjir skuli tilnefna fulltrúa, eins og þar stendur. 4. gr. er viða mest og fjallar um verkefni jafnlaunaráðs, en þar er m.a. kveðið á um framkvæmd laganna, ráðgjöf, rannsókn mála og eins að fylgst sé með þjóðfélagsþróuninni og gerðar till. í samræmi við hana. 5. gr. fjallar um meðferð jafnlaunaráðs á lagabrotum af þessu tagi, 6. gr. um málsmeðferð fyrir héraðsdómi og 7. gr. um reglugerðarsetningu í samræmi við anda laganna.
Ég tel svo óþarft að fjölyrða hér frekar um málið, en n. mælir með samþykkt þess.