11.04.1973
Efri deild: 89. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3326 í B-deild Alþingistíðinda. (2829)

5. mál, orkuver Vestfjarða

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Við getum víst ekki kennt hæstv. ríkisstj. um það, að þetta mál er svona seint á ferðinni, því að það er með fyrstu málum þessa þings, en barst ekki til Ed. fyrr en nú fyrir örfáum dögum. Iðnn. hefur skoðað þetta frv., sem er staðfesting á brbl. og felur raunar eingöngu í sér hækkun á kílówatta framleiðslu, heimild til virkjunar Mjólkár í Arnarfirði í 10 þús. kw. Mælir n. í nál. á þskj. 643 með samþykkt frv.