13.04.1973
Sameinað þing: 71. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3480 í B-deild Alþingistíðinda. (3004)
157. mál, milliþinganefnd í byggðamálum
Frsm. (Björn Fr. Björnsson):
Herra forseti. Allshn. Sþ. hefur athugað þessa þáltill. Það kom strax í ljós á nefnarfundi, að menn voru nokkurn veginn einhuga um höfuðatriði þessarar till.
Það fer að sjálfsögðu ekki á milli mála, að byggðamálin eru í flokki hinna brýnustu og þýðingarmestu verkefna á sviði þjóðmála okkar. Er því meira en tímabært, að sem fyrst verði tekin skýr og almenn byggðastefna og henni síðan fylgt eftir af fullri alvöru og festu.
Um það, hvernig byggðamálunum hefur verið sinnt fram að þessu, skal ég ekki vera margorður. Það hefur oft verið rætt áður. Eins og nú háttar tíma og störfum Alþingis, sýnist varla neinum tilgangi þjóna, að ég hafi um þetta mörg orð. Síðast í gærkvöld fengum við svolitla undirvísun í þessu efni, og ég læt það a.m.k. duga að sinni.
Meðan n. hafði þessa till. til meðferðar var lögð fram á þinginu ályktunartill. um skipulag byggðamála. Er sú till. á þskj. 383 og flutt af 9 þm. Sjálfstfl. Þó að þessari till. hafi ekki enn verið vísað til allshn., þegar hún var að starfi um þá till., sem hér er til umr., var hún eigi að síður tekin einnig til íhugunar, enda er þar um svipað efni að ræða. Í þessari till. sjálfstæðismanna er drepið á mörg atriði, sem skylt er að veita athygli.
Allshn. telur, að höfuðáherzlu beri að leggja á, að efld verði sem allra viðtækust samstaða um skipulögð vinnubrögð í því starfi, sem framundan er, þegar marka skal ákveðna byggðastefnu, og síðan að koma henni til framkvæmda, eftir því sem við á á hverjum tíma. Allt, sem leiða kann til einingar í þessu stórmáli þjóðarinnar, er af hinu góða. Allshn. hefur með hliðsjón af nefndri till. á þskj. 383, þ.e.a.s. till. sjálfstæðismanna, þótt rétt að víkja við í fáum atriðum þáltill. þeirri, sem hér er til umr. Leggur allshn. einróma til, að þáltill., eins og n. hefur gengið frá henni og flutt á þskj. 560, verði samþ. af hinu háa Alþ.