06.11.1972
Neðri deild: 10. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (301)
36. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. þegar frv. sama aðalefnis og þetta var til umr. hér í hv. d. á síðasta þingi, lýsti ég yfir fylgi við frv. Ég taldi, að í því fælist bætt og aukin þjónusta við neytendur og þess vegna væri hér um réttlætismál að ræða, enda höfðu Neytendasamtökin mjög eindregið lýst yfir fylgi sínu við, að þær hugmyndir, sem í frv. fólust, næðu fram að ganga. Nú hafa nokkrar breytingar verið gerðar á frv. síðan í fyrra. Ég skal ekki fjölyrða um þær, en aðeins endurtaka, að ég tel þetta frv. vera spor í rétta átt, vegna þess að þjónustan við neytendur á mjög mikilvægu viðskiptasviði, þ.e. að því er snertir mjólkursölu, mundi tvímælalaust batna, ef grundvallaratriði frv. næðu fram að ganga.