14.04.1973
Sameinað þing: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3522 í B-deild Alþingistíðinda. (3055)

61. mál, verðaukaskattur af lóðum

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja hér umr. Ég vil bara segja frá því í tilefni af þessari þáltill., að eitt af þeim verkum, sem n. sú, sem athugar endurskoðun á tekjuskatti, er að fást við, er einmitt þetta verkefni. Það var byrjað á því í fyrra að skoða það, var ekki talið kleift að setja það inn í lög þá, en þetta er einn af þeim þáttum, sem þar er verið að endurskoða.