14.04.1973
Sameinað þing: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3526 í B-deild Alþingistíðinda. (3070)

175. mál, endurskoðun á tryggingakerfinu

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Þáltill. þessi, sem hér er til meðferðar, fjallar um endurskoðun á tryggingakerfinu. Allshn. hefur íhugað till. allnokkuð, en telur sér þó ekki fært eftir ekki lengri íhugun á málinu að taka beina afstöðu til þeirra ýmsu atriða, sem þáltill. hefur að geyma. Hins vegar telur allshn., að höfuðefni þáltill. sé allrar athygli vert, og í trausti þess, að þetta mál fái þar ekki síður rækilega könnun, þykir n. eftir öllum atvikum rétt að vísa tili. til ríkisstj.