14.04.1973
Efri deild: 94. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3533 í B-deild Alþingistíðinda. (3085)

238. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Síðan 2. umr. fór fram um þetta frv., sem hér er til umr., hefur landbn. komið saman og fjallað um þetta frv. að nýju. Meiri hl. ber fram brtt. á sérstöku þskj., sem nú hefur verið lýst. Ég lýsti því á fundi í landbn., að ég gæti eftir atvikum fellt mig við þá afgreiðslu, sem meiri hl. leggur hér til, því að með henni er í raun og vera gengið inn á höfuðkröfuna, sem ég gerði til þeirrar lagasmíðar, sem hér var fjallað um. Ég mun þess vegna taka aftur þá till., sem minni hl. flutti á sérstöku þskj. við þetta frv., og sætti mig eftir atvikum við þá afgreiðslu á málinu, sem hér er áformuð, og geri ekki ágreining.