14.04.1973
Neðri deild: 90. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3570 í B-deild Alþingistíðinda. (3182)

241. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég hafði kvatt mér hljóðs um þetta mál þegar í upphafi 2. umr. fyrir tveimur dögum. Nú sem málið hefur tekið nýja stefnu eftir þá yfirlýsingu, sem hæstv. sjútvrh. gaf, sem ég tek eindregið undir og fylgi alfarið, þá geymi ég mér alla frekari málsútlistun í trausti þess, að málið komi aftur fyrir til frekari meðferðar á haustdögum.