14.04.1973
Neðri deild: 90. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3577 í B-deild Alþingistíðinda. (3189)
241. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Friðunar- og verndaraðgerðir á fiskimiðum okkar Íslendinga eru eitt af okkar allra stærstu málum. Það er bæði vegna þess, að það er nauðsyn vegna fiskstofnanna og fiskveiðanna, en í annan stað, eins og hv. 8. landsk. þm. Benedikt Gröndal, benti á, hefur það ákaflega mikla þýðingu varðandi kynningu málsins og allan áróður fyrir okkar málstað út á við, að við sýnum í verki, að við viljum verndun og friðun fiskstofnanna. Ég er einn þeirra manna, sem hafa talið, að of skammt hafi verið gengið í þeim efnum, bæði hjá núv. og fyrrv. ríkisstj., og hefði þurft að gera miklu meiri átök í þeim efnum. Hins vegar er vissulega ástæða til að fagna því, að nú er komið þetta ítarlega og að mörgu leyti vel undirbúna frv. frá fiskveiðilaganefnd. Ég skal að sjálfsögðu taka það fram, að í sumum efnum finnst mér það frv. ganga of skammt og í öðrum efnum er kannske gengið full harkalega fram í friðunaraðgerðum. Allt þetta þarf skoðunar við. En í heild fagna ég frv. Ég tel, að það væri ákaflega mikilvægt, að við gætum sem fyrst afgreitt þetta mál, og ég tel það miður, ef það verður að bíða haustsins.
Hitt er auðvitað fjarstæða ein, að ætla sér á örfáum dögum að afgreiða slíkt mál sem þetta. Frv. var útbýtt í þessari viku, mánudaginn 9. apríl, og tveimur dögum síðar afgreiðir meiri hl. sjútvn. þessarar hv. d. málið og segir í nál.: „N. ræddi frv. á fundi sínum í dag“, þ.e.a.s. á einum fundi. Frv. var ekki sent til umsagnar neinna aðila. Þetta ber nokkurn vott um það, hvernig vinnubrögðin hafa verið og tímahrakið í þeirri n. Þegar það er athugað, að í þessari sömu viku, sem ætlazt er til, að þetta stóra mál sé athugað og afgreitt, hefur ríkisstj dembt yfir Alþ. ofan á öll önnur mál 11 nýjum stjórnarfrv. eða stjórnarmálefnum í þessari einu viku. Þessi vinnubrögð eru með þeim endemum, að ég veit ekki til þess, a.m.k. ekki þau ár, sem ég hef verið á þingi, að neitt svipað hafi átt sér stað. Og svo á að slíta þingi eftir örfáa daga.
Ég held, að í rauninni væri vel hægt að ná samstöðu á Alþ. um þetta mikilvæga mál, en til þess þarf auðvitað tíma. Það er ekki hægt að ætlast til þess, að slíkt stórmál sé afgreitt á örfáum dögum, það þarf til þess nokkrar vikur, og þá er ég þess fullviss, að takist á Alþ. að ná samstöðu í málinu.
Ástæðan til þess vanda, sem hér hefur skapazt og nú hafa orðið harðar deilur um á þessum fundi, er eingöngu sú þráhyggja hæstv. ríkisstj. að ætla að slíta þinginu nú eftir nokkra daga og gefa ekki Alþ. eðlilegt tóm til að íhuga og afgreiða hin stærstu mál. Ef ríkisstj. félli frá þessari þráhyggju og þingið starfaði um nokkra hríð eftir páska, væri vafalaust hægt að leysa þetta mál á viðunandi og góðan hátt, eins og mörg önnur. En ef ríkisstj. heldur fast við þessa mjög svo óskynsamlegu ákvörðun sína, þá sé ég ekki. hvernig er möguleiki á því að afgreiða þetta mál.
Meginatriðið í þessu máli í dag er því þetta: Ætlar ríkisstj. að halda fast við þessa ákvörðun sína um að hraða málum hér í þinginu, þannig að þau fái ekki eðlilega meðferð í n. eða á þingfundum, eða þá láta mál daga uppi, eða ætlar hún að gefa Alþ. eðlilegan tíma til þess að viðhafa þau vinnubrögð, sem því sæma?