16.04.1973
Neðri deild: 91. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3609 í B-deild Alþingistíðinda. (3239)

169. mál, heilbrigðisþjónusta

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. þetta álit hans á þessu máli. Ég tel, að það undirstriki það alveg fullkomlega, að hér er ekki um neina efnisbreytingu að ræða frá því, að málið var afgreitt hér í Nd., þannig að það sé tryggt, að byggt verði í hverju læknishéraði a.m.k. eitt deilaskipt sjúkrahús. Í þeirri trú mun ég ekki bera fram brtt. við þetta.