17.04.1973
Sameinað þing: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3802 í B-deild Alþingistíðinda. (3417)

Umræður utan dagskrár

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Það var aðeins örstutt fsp. til hæstv. forseta. Mér leikur forvitni á, af því að það er nú langt liðið á þinghaldið og stefnt að þinglausnum á morgun, að spyrjast fyrir um það, hvenær skýrsla samgrh. um framkvæmd vegáætlunar 1972 verður tekin til umr.