18.04.1973
Neðri deild: 98. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3831 í B-deild Alþingistíðinda. (3468)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Gils G) :

Þar sem þetta er síðasti fundur Nd. Alþ. að þessu sinni, vil ég nota tækifærið og þakka öllum hv. þdm. fyrir mjög góða samvinnu við mig sem deildarforseta á því þingi, sem nú er að ljúka. Ég þakka varaforsetum d. og skrifurum fyrir þá aðstoð, sem þeir hafa veitt mér. Skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsliði þingsins skulda ég einnig þökk fyrir ágætt samstarf. Nú, þegar leiðir skiljast um sinn, óska ég ykkur öllum, hv. þdm., svo og fjölskyldum ykkar, velfarnaðar á komandi sumri og læt þá ósk í ljós, að við megum öll hittast heil, þegar þing hefst að nýju í haust.