18.04.1973
Neðri deild: 98. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3832 í B-deild Alþingistíðinda. (3470)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Gils G) :

Ég þakka hv. 7. þm. Reykv. fyrir góðar óskir í minn garð og velviljuð ummæli, og ég þakka ykkur, hv. þdm., fyrir að taka undir þær óskir. Ég ítreka svo það, sem ég áður sagði, að ég þakka fyrir samvinnuna á því þingi, sem nú er að ljúka, og óska öllum þdm. gleðilegs sumars. — Fundinum er slitið.