09.11.1972
Sameinað þing: 14. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (365)
52. mál, kavíarverksmiðja á Norðausturlandi
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Till., sem hér liggur fyrir á þskj. 55, er þess efnis, að Alþ. álykti að leggja fyrir ríkisstj., að hún láti kanna hið fyrsta möguleika á því að koma upp og reka fullkomna kavíarverksmiðju á Norðausturlandi til að vinna grásleppuhrogn. Ég sé, að staðarval skal fara eftir hagkvæmni og atvinnuþörf.
Það er rétt, sem hv. frsm. tók fram og einnig hv. 4. þm. Norðurl. e., að mjög mikill hluti af þeirri grásleppu, sem veiðist hér við land, veiðist við Norðurland og ekki sízt Norðausturland. Grásleppuhrognin hafa verið seld óunnin eða a.m.k. ekki fullunnin, flutt út söltuð í tunnum. En ástæða er til að ætla, að mun meira verð mætti fá fyrir vöruna, ef hún væri seld út fullunnin.
Ég er mjög ánægður yfir því, að þessu máli skuli vera hreyft hér varðandi Norðausturland, en ég hefði kosið, að því væri ekki hreyft á fyrsta stigi á þann hátt að koma upp einni stórri verksmiðju, sem tæki á móti hrognunum frá öllum þeim stöðum, þar sem grásleppa er veidd, heldur væri það athugað, jafnvel fyrst og fremst, hvort ekki væru möguleikar til þess að vinna hrognin í smáum stíl á þeim stöðum, þar sem þau eru veidd. Mig skortir þekkingu til þess að vita, hvort þetta er hægt á hagkvæman hátt. En ef það væri hægt, væri það auðvitað miklu æskilegra fyrir þá staði, þar sem grásleppan er veidd. En fyrir utan þá staði, sem hér hafa verið nefndir við Eyjafjörð, þá er t.d. mikið veitt af grásleppu á Húsavík og Tjörnesi, sem þar er lögð á land á ákveðnum stað, einnig á Kópaskeri, Raufarhöfn og, Þórshöfn og að ég ætla einnig á Vopnafirði. Á öllum þessum stöðum er um mjög verulega veiði að ræða og jafnvel á einstökum jörðum, þar sem grásleppumið eru fyrir landi, en að sjálfsögðu er ekki hægt að gera ráð fyrri því, að unnið yrði úr hrognunum á hverjum slíkum stað. En þetta finnst mér, að þyrfti að athuga fyrst og fremst. Ef það er framkvæmanlegt að vinna kavíarinn úr hrognunum í smáum stíl, eins og yrði í hinum einstöku þorpum, væri það mjög æskilegt fyrir þessa staði. Komi í ljós, að það sé ekki hægt af fjárhagslegum ástæðum, þá náttúrlega verður að taka því.
Ég hef leyft mér að flytja brtt. á þskj. 60 um það, að í staðinn fyrir „fullkomna kavíarverksmiðju“ komi „kavíarvinnslustöðvar“, og er þá miðað við, að þetta yrði á fleiri stöðum. Ég vil mælast til þess, að sú hv. n., sem fær till. til meðferðar, taki brtt. einnig til athugunar, og ekki er ólíklegt, að skynsamlegt væri að leita umsagnar um þetta til Framkvæmdastofnunar ríkisins, sem er nú að athuga ýmsa hluti í þessu sambandi, t.d. í sambandi við landshlutaáætlanir.
Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð, aðeins mælast til þess við n., að hún taki þetta til athugunar og þetta verði grandskoðað.