21.11.1972
Sameinað þing: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 807 í B-deild Alþingistíðinda. (539)

279. mál, laxarækt í Laxá

Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að fara út í það, að hv. 4. landsk. veit ekki mun á Laxárvirkjun III og Gljúfurversvirkjun, en þakka menntmrh. fyrir hans svör, sem þó því miður voru ófullnægjandi, því að ekkert kom hann inn á þá fsp., hvort rn. hefði eitthvað eða ekkert við það að athuga, hve miklu af laxaseiðum var sleppt í ána ofan Brúa og hvort það væri ekki byrjun á vistfræðilegri röskun. Að öðru leyti þakka ég svar ráðh.