27.11.1972
Neðri deild: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í B-deild Alþingistíðinda. (585)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (GilsG):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt bingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Vesturl., Skúli Alexandersson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Jónas Árnason,

5. þm. Vesturl“

Skúli Alexandersson hefur áður á þessu kjörtímabili tekið sæti á Alþ., og hefur rannsókn á kjörbréfi hans farið fram, og býð ég hann velkominn til starfa.