28.11.1972
Sameinað þing: 21. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (605)

84. mál, Sigölduvirkjun

Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Ég þakka upplýsingar ráðh., en af þeim kemur fram, að lán hefur ekki verið tryggt enn til þessarar virkjunar og markaður er ekki tryggður heldur nema að mjög litlu leyti. Þess vegna hygg ég, að mörgum hrjósi nokkuð hugur við, hvernig að þessum framkvæmdum er staðið. En sem sagt, ég þakka þær upplýsingar, sem hér hafa komið fram. Þær töluðu sínu máli.