05.12.1972
Sameinað þing: 25. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (727)
91. mál, iðnfræðsla
Pétur Pétursson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð til þess að lýsa stuðningi mínum við það, sem bæði hæstv. menntmrh, og hv. 4. þm. Reykv. voru að tala um í sambandi við nauðsyn á aukinni iðnfræðslu. Mér finnst, að það sé nauðsynlegt að taka mjög fast og ákveðið á þessum málum. Það er auðvitað ágætt að skipa n., en mér finnst það vera svo mikið grundvallaratriði fyrir þann aukna iðnað, sem rætt er um og ætlunin er að byggja upp í landinu, að hér verði bókstaflega að hefjast handa. Ég er satt að segja hræddur um, að iðnbyltingin fari út um þúfur, ef ekki verður tekið hér rösklega á, eins og raunar á ýmsum öðrum sviðum í sambandi við iðnaðinn í landinu.