15.12.1972
Sameinað þing: 31. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1273 í B-deild Alþingistíðinda. (911)

Umræður utan dagskrár

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég taldi, að 2. umr. fjárl. hefði verið lokið í gærkvöld, og ætla því ekki að fara að hefja umr. um þau á nýjan leik nú. Ég vil hins vegar benda hv. 12. þm. Reykv. á, að það, sem ég svaraði til hér í gærkvöld, var það, að mér væri ekki fullkomlega kunnugt um, hvað það mundi kosta að greiða niður þau 2000, sem var varið til þess að halda vísitölunni í skefjum fram að næstu áramótum. En annað var ekki hér til umr., því að frekari ákvörðun um það mál hefur ekki verið tekin. Það hefur ekkert laumuspil verið framið af hendi minni í sambandi við það. Það er ekki mitt að gefa út tilkynningu um vísitölu, heldur aðeins að greiða þetta til að halda henni í því markí, sem hún nú er í.