16.12.1972
Sameinað þing: 32. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1329 í B-deild Alþingistíðinda. (961)

33. mál, efling Landhelgisgæslunnar

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil geta þess í sambandi við þetta mál, að það mun verða tekið til athugunar, áður en fjvn. lýkur afgreiðslu sinni, um fjármál út af væntanlegum skipakaupum. Á hvern hátt það kann að verða, get ég ekki sagt á þessu stigi, en það mun verða rætt við n., áður en hún lýkur sínum störfum.